Pembroke Welsh Corgi
Velskur corgi
Höf. Gunnlaugur Valtýsson og Kristlaug Elín Gunnlaugsdóttir
Velskur corgi er smágerð tegund af hjarðhundi sem er upprunnin í Wales. Tvö afbrigði tegundarinnar eru viðurkennd: Cardigan velskur corgi og pembroke velskur corgi en pembroke er algengari. Hvor tegundin fyrir sig er nefnd eftir sýslum í Wales þar sem uppruni þeirra er talinn vera. Munurinn milli þessara tegunda er meðal annars beinabygging þeirra, líkamslengd og stærð.
Cardigan
Cardigan er stærri af tegundunum tveimur. Þeir eru með stór ávöl eyru og refslegir, skottið skal vera meðallangt og í samræmi við líkamann. Fleiri litir eru leyfðir í cardigan, með eða án hvítra merkinga en hvítur má þó aldrei vera yfirgnæfandi í feldi. Cardigan er með tvöfaldan feld þar sem ytri feldurinn er þéttur, áferð hans aðeins grófari og miðlungslangur.Undirfeldur hundsins er stuttur, mjúkur og þykkur. Tegundin er um 30 cm á herðakamb og vegur um 14 kg. Cardigan er traustur, sterkur, hreyfanlegur, vakandi, virkur, greindur og stöðugur.
Pembroke
Pembroke eru með oddlagaðri eyru en cardigan og eru nokkuð minni í vexti. Þeir eru taldir þægilegri hundar - lágvaxnir, sterkir og traustir með nægjanlegt þol til að vinna daglega á bóndabæjum. Höfuð hundsins líkist refshaus og skottið er stutt, sem hægt er að ná í gegnum ræktun eða með stífingu.
Sögulega er pembroke með náttúrulegt „bob tail“ (mjög stutt skott eða skottlaus með öllu) en í dag ef hann er með skott, skal hann bera það náttúrulega miðað við topplínu. Þá er leyfilegt að hann lyfti því við hreyfingu eða þegar hann veitir einhverju athygli. Vegna tilkomu skottstífinga hunda var ekki lögð mikil áhersla á „bob-tail“ í ræktun og lögðu ræktendur meiri áherslu á aðra eiginleika. Skottstífing var því algeng en þar sem mörg lönd banna orðið skottstífingu reyna ræktendur aftur að velja hunda með gen fyrir náttúruleg „bob-tail“. Pembroke er 25-30 cm á herðakamb og vegur um 9-12 kg.
Velskur corgi er smalahundur og sinnir skyldum sínum með því að glefsa í hæla en lágur vöxtur hundsins gerir það að verkum að hann á auðvelt með að forðast spörk þess sem hann er að smala.
Sem smalahundur vinnur corgi smölun á annan hátt en aðrar tegundir. Í stað þess að safna saman búfénaði á sama hátt og til dæmis collie, með því að hlaupa utan með hjörðinni, rekur corgi hjörðina fram með því að glefsa í hæla dýranna og vinna þannig aftan við hjörðina eða dýrin í hálfhring. Hann gefur sjaldan eftir og ef dýr snýst til varnar, glefsar hann í nef þess sem veldur því að dýrið snýr aftur í hjörðina. Þótt corgi hafi verið sérhæfðir í smölun nautgripa eru þeir einnig notaðir til að reka sauðfé og velsk hross. Þeir eru einnig ein af fáum tegundum sem geta smalað gæsahópum.
Velskir corgiar gættu einnig barna og voru elskaðir sem gæludýr. Þeir eru afskaplega trúir eiganda sínum, vakandi, kátir, sérlega skapgóðir og öruggir. Corgi hefur alla eiginleika góðs fjölskylduhunds og ætti aldrei að vera feiminn né árásargjarn.
Uppruni
Uppruna corgi er erfitt að rekja. Minnst er á velskan nautgripahund í 11. aldar handriti þó ekkert segi til um hvort þetta sé corgi eða forfaðir hans.
Velsk þjóðtrú segir corgi sé uppáhalds-reiðskjóti álfastríðsmanna. Einnig er til goðsögn sem segir að corgi hundar hafi verið gjöf frá skógarálfum og að einkenni á feldi þeirra séu eftir beisli og hnakka álfanna. Corgi hundar hafa oft hvíta rönd, sem nær frá nefi, milli augna og upp á enni en þessi merking er kölluð blesa.
Fyrsta skráða dagsetning um sýningu á corgi er frá í hundasýningu í Wales árið 1925. Fyrstu sýningardýrin komu beint af sveitarbæjunum og fengu aðeins miðlungs-athygli. Seinni tilraunir í ræktun til að bæta við náttúrulegt útlit hundsins voru verðlaunaðar með auknum vinsældum. Í mörg ár voru kynin tvö, cardigan og pembroke, sýnd sem tvö afbrigði af sama kyni. Þar sem bæði afbrigðin voru þróuð á svæðum á velska hálendinu, aðeins fáeina kílómetra hvort frá öðru, eru merki um blöndun þeirra sem skýra hversu lík þau eru.
Cardigan er ein af elstu hundategundum í Bretlandi og hefur unnið í aldanna rás með velskum bændum við smölun nautgripa, smölun á búfénaði bænda á beitarlöndum þeirra og smölun á nautgripum nágrannans út úr görðum og opnum högum. Frá upphafi voru þessir hundar virtir fjölskyldumeðlimir við leik og störf, gættu barna og hjálpuðu við veiðar. Pembroke er talinn hafa komið til Bretlands með flæmskum vefurum um árið 1100 en árið 920 er einnig nefnt til sögunnar. Annar möguleiki fyrir uppruna corgi er ræktun milli cardigan og sænsks vallhund, sem er hundur af spitz-tegund og líkist pembroke. Sænskur vallhund er talinn hafa komið til Bretlands með norrænum innrásarherjum víkinga.
Heilsa
Bæði cardigan og pembroke eru meðal heilbrigðustu og langlífustu smalahunda í tegundahópi 1. Cardigan hefur tilhneigingu til að vera svolítið harðari af sér og hefur færri skjalfesta arfgenga kvilla. Lífslíkur cardigan eru á milli 12 og 14 ár og pembroke yfirleitt milli 12 og 15 ár.
Athafnasemi
Corgi hundar keppa oft í hundfimi, hlýðni, á sýningum, flyball og smalakeppnum. Smalaeðlishvöt og þjálfunarhæfni er hægt að mæla með smalaeðlisprófi. Corgi eru smalahundar sem hægt er að þjálfa til að keppa í smalakeppnum.
Menningarleg áhrif
Utan Wales hefur corgi orðið frægur og vinsæll vegna Elizabeth II Englandsdrottingar sem hefur ávallt að minnsta kosti fjóra hunda í för með sér.
Corgiar voru frægar sögupersónur í bókunum Corgiville Fair, The Great Corgiville kidnapping og Corgiville Christmas en höfundur þeirra er Tasha Tudor. Walt Disney kvikmyndin, Little Dog Lost, kom út árið 1961 og í kjölfarið fylgdi mikil umfjöllun um pembroke corgi. Í teiknimyndinni Cowboy Bebop hafa helstu persónur myndarinnar mjög greindan pembroke, nefndan Ein, á skipi sínu.